top of page
Search

Framundan hjá Fræðslunefnd

  • Writer: Soti
    Soti
  • 1 day ago
  • 1 min read

Updated: 8 hours ago

Kæru Sótafélagar 


Hér koma upplýsingar um hvað er framundan hjá fræðslunefnd 


Alla miðvikudaga: Einka/hóptímar hjá Atla Guðmunds  - sjá hér: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1yOuDUZbACEFtHv8KSS50I_UrGi2wNp2u-oSEdblHooE/edit?usp=sharing


24 febrúar kl. 20:00: Fræðsluerindi /webinar með Susanne Braun "Saddle position and girth tool" Erindið fer fram á skjánum í félagshúsi og er á ensku.  Frítt inn og kaffi í boði fræðslunefndar. 



14-15 mars: Helgarnámskeið/Einkatímar með Bergey Gunnarsdóttir í samvinnu við Brimfaxa. 

Bergey Gunnarsdóttir er útskrifaður reiðkennari frá Hólum og hefur mikla keppnisreynslu.   Hún býður uppá einkatíma eftir þörfum hvers og eins, á öllum aldri.  


18 mars: Kynning á öryggisvestum og innfrarauðum vörum.  Félagshús kl. 20:00


24 mars kl. 18:00: Sýnikennsla í reiðhöll Sóta um stökkþjálfun með Nönnu Daugbjerg. 


Ath að skráningu lýkur 28 febrúar! 


25-26 april: Helgarnámskeið/Einkatímar með Bergey Gunnarsdóttir í samvinnu við Brimfaxa. 


8-10 maí: Keppnisnámskeið (eða einkatímar) með Ingunni Ingólfsdóttir.  Upplagt fyrir þau sem ætla að keppa á opna Álftanesmótinu.  Ingunn kom til okkar í fyrra við mikla ánægju þátttakenda.  Hún er útskrifuð reiðkennari frá Hólum og hefur starfað sem reiðkennari við skólann.  Hún er núna í mastersnámi í kennslufræðum auk þess að starfa við tamningar og þjálfun.  Nánar auglýst síðar.  


 
 
 

Comments


  • Facebook
  • Instagram
  • Youtube

Mýrakot 225 Álftanes

Höfundaréttur 2024 Hestamannafélagið Sóti

bottom of page