Mikill hugur í reiðhallarnefnd
- Soti

- Jan 3
- 1 min read
Mikill hugur er í reiðhallarnefnd þessa dagana en þeir hafi verið sveittir í sjálfboðavinnu í höllinni frá því fyrir jól og hafa nýtt frídagana milli jóla og nýárs vel.
Undanfarið hafa þeir unnið að setja upp vökvunarkerfi og gerðu sér ferð að Kjarri í Ölfusi til að skoða vökvunarkerfið hjá þeim sem er svipað og notað er í gróðurhúsum.
Reiðhallarnefnd Sóta eru þegar langt komnir með að koma því í gagnið í Dýralífs-Höllinni. Einnig er búið að setja upp hillur fyrir sessurnar þar sem þær munu ekki safna ryki og raka, heldur vera tilbúnar fyrir næsta viðburð.
Einnig er stefnt á að fræsa upp gólfið, laga lýsingu, setja upp hljóðkerfi, hitara á pallinn ofl, ofl.
Í reiðhallarnefnd 2026 eru Ari (formaður), Gulli, Oddur, Styrmir, Valdimar, Carsten, Jörundur, Steinunn og Sigurjón. Einnig hefur Guðmundur Ragnars, Guðmundur Þórir og Assi hjálpað til.
VEL GERT!























Comments