Niðurstöður úr folaldasýningu Sóta
- Soti
- May 5
- 2 min read
Updated: May 6
Skemmtilegur kynbótadagur hjá Sóta
Laugardaginn 26.apríl fór fram sýning / keppni meðal folalda í eigu félagsmanna Sóta.
6 hestfolöld og 5 merfolöld mættu til leiks en Elsa Albertsdóttir, doktor í erfða og kynbótafræði dæmdi folöldin. Dæmt var eftir nýjum ICE foal staðli þar sem folöldin fá stig fyrir byggingu og hreyfingar.
Einnig var félagsmönnum gefin kostur á að koma með eldri hross þar sem Elsa fór yfir sköpulag og útskýrði vel hvernig hver liður er dæmdur (höfuð, háls/herðar/bógar, bak og lend, samræmi, fótagerð, réttleiki, afturfætur, hófar og prúðleiki) Félagsmenn mættu með nokkrar merar, stóðhest og gelding og var mjög áhugavert að heyra hvað Elsa hafði að segja.
Tómas og fjölskylda buðu svo í kaffi í vöfflur í félagshúsi.
Í verðlaun fyrir besta hestfolaldið var folatollur undir Kolgrím frá Breiðholti, gefin af Högna, Magnúsi og Gunnari og fyrir besta merfolaldið var folatollur undir Vökul frá Efri-Brú, gefin af Guðrúnu Böðvarsdóttir.
Kærar þakkir fyrir frábæran dag!
Úrslit:
Merfolöld:
1.sæti: Boðadís frá Breiðholti Gbr
Litur: Jarpskjótt
F: Atlas frá Hjallanesi 1
M; Mánadís frá Breiðholti, Gbr
Eigendur og ræktendur: Högni og Magnús Már Gunnarsynir
2.sæti: Snælda frá Straumi
Litur: Brún
F: Vökull frá Efri-Brú
M: Snerpa frá Straumi
Eigandi og ræktandi: Högni Steinn Gunnarsson
3.sæti: NN frá Hjara
Litur: Bleikálótt
F: Þulur frá Tölthólum
M: Gróa frá Hjara
Eigandi: Jörundur Jökulsson
4.sæti: Heba frá Minna-Núpi
Litur: Brún
F: Hulinn frá Breiðstöðum
M: Hera frá Minna-Núpi
Eigendur og ræktendur: Jón Trausti Gylfason & Elfur Erna Harðardóttir
5.sæti: Lind frá Reiðnesi
Litur: Brún
F: Þulur frá Tölthólum
M: Dimma frá Efsta-Seli
Eigandi og ræktandi: Jörundur Jökulsson
Hestfolöld:
1.sæti: Gosi frá Álftanesi
Litur: Bleik-blesóttur
F: Þulur frá Tölthólum
M: Klassík frá Steinnesi
Eigandi og ræktandi: Margrét Lóa Björnsdóttir
2.sæti: Vikar frá Efri-Brú
Litur: Korgjarpur
F: Stáli frá Kjarri
M: Kjalvör frá Efri-Brú
Eigandi: Tómas Guðmundsson & Guðmundur Örn Böðvarsson
3.sæti: Kjói frá Álftanesi
Litur: Brúnn
F: Aspar frá Hjarðartúni
M: Kría frá Álftanesi
Eigandi og ræktandi: Steinunn Guðbjörnsdóttir
4.sæti: NN frá Akranesi
Litur: Rauðskjóttur
F: Þráinn frá Flagbjarnarholti
M:
Eigandi og ræktandi: Arnar Ingi Lúðvíksson
5.sæti: NN frá Reiðnesi
Litur: Grár / vindóttur
F: Þulur frá Tölthólum
M: Hulda frá Vetleifsholti 2
Eigandi og ræktandi: Jörundur Jökulsson
6 sæti: Ás frá Reiðnesi
Litur: Jarpvindóttur
F: Álfaklettur frá Syðri Gegnishólum
M: Agla frá Tölthólum
Eigandi og ræktandi: Jörundur Jökulsson
Comments