Samningur til styrktar starfi í Sóta

13 hours ago
1 min read
Þann 9. september síðastliðinn var skrifað undir tveggja ára samning sem mun styrkja rekstur Hestamannafélagsins Sóta og styðja við áframhaldandi uppbyggingu félagsins.
Samningurinn er mikilvægur liður í því að efla starfsemi Sóta til framtíðar, ekki síst æskulýðsstarfið sem skipar stóran sess í starfi félagsins. Með auknum stuðningi skapast enn betri tækifæri til að byggja upp öflugt og fjölbreytt starf fyrir börn og ungmenni og stuðla þannig að áframhaldandi grósku í hestamennsku á svæðinu.
Stjórn Sóta fagnar samningnum og þeim tækifærum sem hann skapar fyrir félagið og félagsmenn næstu tvö árin.





Comments